Við auglýsum hér með eftir hugsanlegum framlögum á málstofu á vegum Rannsóknarstofu í UT og miðlun (RANNUM) á Menntakviku ráðstefnunni sem haldin verður 5. október 2012. Megintilgangur ráðstefnunnar er að skapa mennta- og uppeldisstéttum vettvang til að kynnast nýbreytni í rannsókna og þróunarstarfi sem unnið er í skólum landsins og innan háskólaumhverfisins.
Í ár eins og síðustu tvö ár hefur verið ákveðið að veita rannsóknastofum tækifæri til að koma að skipulagningu og undirbúningi málstofa ráðstefnunnar, hver á sínu sérsviði. Ætlast er til að hópurinn sem kynnir á hverri málstofu samanstandi af fræðimönnum, framhaldsnemendum og fólki af vettvangi, t.d. þeim sem hafa unnið þróunarverkefni sem tengist fræðasviði rannsóknarstofunnar.
Hver rannsóknastofa getur fengið úthlutað eitt til þrjú „slott“ og í hverju „slotti (eins og hálfs tíma væntanlega) þar er gert ráð fyrr fjórum erindum. Á ráðstefnunni er hverjum einstaklingi einungis ætlað að flytja eitt erindi, sem aðalflytjandi. Auk þess er bent á möguleika á að vera með veggspjaldakynningu í tengslum við hverja málstofu.
Í fyrra voru þrjár málstofur á vegum RANNUM með 12 erindum.
Áhugasamir sem vilja taka þátt í RANNUM málstofu(m) geta sent okkur tillögu á soljak@hi.is FYRIR 5.maí nk. þar sem fram þarf að koma:
- flytjendur
- titill erinda
- stuttur útdráttur/lýsing
- hvort áhugi er fyrir erindi eða veggspjaldakynningu – í síðara tilviki væri frekar um að ræða verkefni í deiglu á áætlanastigi.
F.h. undirbúningshópsins
Sólveig Jakobsdóttir